Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, segir Harald fimmta Noregskonung hafa verið góðan þjóðhöfðingja sem Norðmönnum þótti afar vænt um. Dagurinn í dag sé sorgardagur fyrir alla.Haraldur var konungur Noregs í 35 ár en hann lést í morgun.Halla vottar norsku konungsfjölskyldunni og Norðmönnum sína dýpstu samúð.„Það er alveg ljóst að norska þjóðin er í sorg í dag og við finnum til með frændum okkar Norðmönnum á svona degi. Þarna er fallinn frá afskaplega góður þjóðhöfðingi sem þjóðinni þótti vænt um. Ég skynjaði líka að okkur utan landamæranna þótti sérstaklega vænt um hann og sannarlega á það við um mig. Þetta var einstaklega vitur, hlýr maður með góða kímnigáfu sem sinnti þjóð sinni vel og var elskaður af henni,“ segir Halla í viðtali við fréttastofu.Komið hafi á óvart hve stutt var í kímnigá