Þrenn samtök og stofnanir hafa fengið heimild landskjörstjórnar til kosningaeftirlits við þjóðaratkvæðagreiðsluna á morgun.Þetta eru sendinefnd bresku samtakanna Democracy Volunteers, sérfræðingateymi Mannréttinda- og lýðræðisstofnunarinnar ÖSE og Heimssýn, samtök sjálfstæðissinna í Evrópumálum. Til viðbótar er sendinefnd frá eistneska þinginu stödd hér á landi til að kynna sér framkvæmd atkvæðagreiðslunnar, sem og nokkur fjöldi erlendra blaðamanna.„Helstu markmið og tilgangur kosningaeftirlits eru m.a. að auka gagnsæi við framkvæmd kosninga og efla traust kjósenda, framboða og almennings á niðurstöðum kosninga. Kosningaeftirlit getur því styrkt faglega framkvæmd og leitt til umbóta á málefnasviðinu,“ segir á vef landskjörstjórnar.Gert er ráð fyrir að niðurstöður eftirlitsins séu opinberar