Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra segja það óásættanlegt í lýðræðissamfélagi að ráðherrum sé hótað vegna skoðana þeirra.Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra greindi frá því í Bítinu á Bylgjunni í morgun að henni hefðu borist alvarlegar hótanir.Líf hennar hefði tekið breytingum á síðustu vikum vegna þessa og málið væri á borði lögreglu. Ráðherrann upplýsti ekki um hvers eðlis hótanirnar hefðu verið.Þorgerður gaf ekki kost á viðtali að ríkisstjórnarfundi loknum í dag. Það gerðu Kristrún og Inga. Inga sagði það ömurlegt og ólíðandi að ráðherrum væri hótað.Forsætisráðherra og barna- og menntamálaráðherra segja ólíðandi að ráðamenn þurfi að þola hótanir vegna skoðana sinna. Aukin harka hafi færst í umræðuna um þjóðaratkvæðagreiðsluna