„Ísland gæti orðið næsta aðildarríki ESB – en ekki ef stór útgerðarfyrirtæki fá sínu framgengt“. Svona hljóðar fyrirsögn umfjöllunar hollenska fjölmiðilsins Follow the Money um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður Íslands við ESB.Þar dregur fjölmiðillinn fram líkindi með röksemdafærslum og bakhjörlum nei-hreyfingarinnar og Brexit-hreyfingarinnar á sínum tíma.Eins og nafn fjölmiðilsins, Follow the Money, eða Eltum peningana snarað á íslensku, gefur til kynna sérhæfir hann sig í umfjöllunum um fjármálatengsl. Fyrir þessa umfjöllun skoðaði fjölmiðillinn gagnasöfn um fjármögnun þinghópa á Evrópuþinginu og notaði svo fyrirtækjaskrá Skattsins til að rekja eignarhald íslenskra fyrirtækja á lista yfir styrktaraðila.Rannsókn Follow the Money leiddi í ljós að íslensk fyrirtæki styrktu þinghópa o