Brynjar Níelsson nýr stjórnarformaður Faxaflóahafna

Brynjar Níelsson varð borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins eftir síðustu sveitarstjórnarkosningar. Hann sat á Alþingi í átta ár, frá 2013 til 2021.RÚV / Hjalti HaraldssonBrynjar Níelsson er nýr formaður stjórnar Faxaflóahafna. Stjórnin er skipuð sjö fulltrúum eigenda félagsins sem eru Reykjavíkurborg, Akraneskaupstaður, Hvalfjarðarsveit og Borgarbyggð.Fimm stjórnarmenn komu nýir inn í stjórn sem var kjörin á framhaldsaðalfundi á miðvikudag.Nýir stjórnarmenn fyrir Reykjavíkurborg eru Regína Ásvaldsdóttir og Anna Björk Bjarnadóttir sem er óháð. Líf Lárusdóttir tekur sæti í stjórn fyrir Akraneskaupstað og Haraldur Benediktsson fyrir Hvalfjarðarsveit.
Brynjar Níelsson nýr stjórnarformaður Faxaflóahafna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd