Hamraborg Festival er haldin í sjötta sinn í ár og hefst í dag. Áhugasömum býðst fjöldi listasýninga, gjörninga, vinnusmiðja, tónleika og óhefðbundinna listviðburða. Melkorka Ólafsdóttir hitti tvö tónskáld sem taka þátt í ár, sem bæði luku nýverið meistaranámi á erlendri grundu, og ræddi við þau fyrir Víðsjá á Rás 1. INNSETNING BYGGÐ Á JARÐFRÆÐI OG RAFMAGNSFRÆÐI Ása Anna Ólafsdóttir, eða Asalaus, verður með innsetningu í Náttúrusafni Kópavogs, earth fragments, sem er hljóð- og leikverk þar sem áhugi listamannsins á jarðfræði og rafmagnsfræði sameinast. Nokkrir leirskúlptúrar mynda saman einskonar landslag sem hreyfist og ómar þegar skúlptúrarnir rekast hver í annan.„Þegar ég byrjaði að vinna í þessu verki var ég búin að vera að skoða hvernig hátalarar virka og var að leika mér að því að