Embætti ríkislögreglustjóra staðfestir að hótanir gegn ráðamönnum séu til skoðunar. Slíkt hafi færst í aukana á undanförnum árum. Öryggi þeirra sé á ábyrgð lögreglu og öllum hótunum sé tekið alvarlega.Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra greindi frá því í Bítinu á Bylgjunni í morgun að henni hefðu borist alvarlegar hótanir. Málið væri á borði lögreglu.Hún sagðist upplifa sig örugga en ljóst er að það fékk á ráðherrann að ræða hótanirnar. Ekki liggur fyrir hvers eðlis þær eru.Í skriflegu svari við fyrirspurn fréttastofu til embættis Ríkislögreglustjóra segir að ekki verði veittar upplýsingar um hvaða ráðamenn þurfi aukna öryggisgæslu né ástæður og útfærslu slíkra ráðstafana.„Síðastliðin ár hefur það færst í aukana að efla þurfi öryggisráðstafanir æðstu stjórnar,“ segir í svarinu