Nýr konungur er mikill skíðamaður og umhugað um náttúrvernd og mannréttindi

Hákon VIII er nýtt andlit konungsríkisins Noregs. Hann er 53 ára og yngra barn þeirra Haraldar konungs og Sonju drottningar. Konungdæmi Haraldar V hefur löngum verið lofað fyrir nútímalega ásýnd og samtímis mikla hógværð. Áföll og hneykslismál hafa skekið það hressilega að undanförnu og Hákon gengur inn í nýtt hlutverk á þeim umbrotatímum. Þótt skoðanakannanir sýni að Hákon nýtur nánast sömu virðingar og faðir hans og Sonja móðir hans hefur fylgispekt Norðmanna við konungdæmið dalað verulega. Nýja drottningin Mette Marit er í hringiðu hneykslismálanna vegna tengsla við kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein og vegna ákæra á hendur syni hennar fyrir alvarleg afbrot. Hún er ekki af konungakyni og var einstæð móðir þegar samband þeirra Hákonar hófst, eftir tónlistarhátíð í Noregi árið 1999. Hú
Nýr konungur er mikill skíðamaður og umhugað um náttúrvernd og mannréttindi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd