Allan og Hannes leikstýra Áramótaskaupinu aftur

Allan Sigurðsson og Hannes Þór Arason leikstýra Áramótaskaupi RÚV annað árið í röð. Í tilkynningu frá framleiðslu- og kynningarstjóra RÚV segir að Skaupið í fyrra hafi hlotið bestu viðtökur sem mælst hafi, en 90% sögðust ánægð með það í könnun Maskínu. Allan og Hannes hafa fengið til liðs við sig fimm manna höfundateymi. Það skipa Kristín Þóra Haraldsdóttir, Mikael Kaaber, Ólafur Ásgeirsson, Snjólaug Lúðvíksdóttir og Sverrir Þór Sverrisson.  „Við erum með frábæran höfundahóp. Við höfum unnið mikið með öllu þessu fólki á undanförnum árum og það sem okkur finnst sérstaklega spennandi er hversu ólík þau eru í sínum húmor. Það má því vonandi búast við fjölbreyttu og skemmtilegu Skaupi,“  segir Allan. „Allt ferlið í fyrra, frá fyrstu skrifum fram að spennuþrunginni frumsýningu og frábærum viðbr
Allan og Hannes leikstýra Áramótaskaupinu aftur

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd