Þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort Ísland eigi að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný verður á morgun. Þegar hafa um 21% kjósenda skilað inn atkvæði utan kjörfundar.Fréttastofa náði tali af Sigríði Kristinsdóttur, sýslumanni höfuðborgarsvæðisins, skömmu fyrir hádegi. Þá höfðu 57.223 greitt atkvæði utan kjörfundar, hjá sýslumönnum, ræðismönnum og í sendiráðum. Það eru rétt tæp 21% kjósenda en 272.690 eru á kjörskrá.38.013 kjósendur höfðu greitt atkvæði hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu. Það eru rúm 28% þeirra sem eru á kjörskrá á höfuðborgarsvæðinu, í Reykjavík og í Suðvesturkjördæmi. Þar eru 135.317 á kjörskrá.„Við höfum ekki séð áður svona mikla kjörsókn í utankjörfundaratkvæðagreiðslunni,“ segir Sigríður. HVAR ER HÆGT AÐ KJÓSA? Enn er hægt að kjósa utan kjörfundar víða um