„Bandaríkin er þjóð sem er haldið saman af þjóðvegum og sjónvarpi“

Unnsteinn Manuel Stefánsson hefur fimm sinnum ferðast um bandarískan þjóðveg með bræðrum sínum. Faðir hans var íslenskur en móðir hans er portúgölsk. Hann hefur ferðast víða en langar næst til Asíu eða Suður-Ameríku. Unnsteinn Manuel er kynnir á Klassíkinni okkar á RÚV í kvöld ásamt Höllu Oddnýju Magnúsdóttur. Ellefta árið í röð bjóða RÚV og Sinfóníuhljómsveit Íslands upp á tónlistarveislu í beinni útsendingu frá Hörpu þar sem landsmönnum gefst kostur á að hafa áhrif á efnisskrána. Leiftrandi fjörug hljómsveitartónlist og tregafullir söngvar í bland við ástríðufullar aríur, hetjusöngva og kraftmikinn píanóleik verða á boðstólum. Í tilefni þessa kíkti Unnsteinn Manuel í Sumarmál á Rás 1 og sagði ferðasögu sína, bræðra sinna Loga Pedro Stefánssonar og Stígs Stefánssonar og Stefáns Garðars St
„Bandaríkin er þjóð sem er haldið saman af þjóðvegum og sjónvarpi“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd