Segja má að allsherjarinnrás Rússa í Úkraínu vorið 2022 hafi á vissan hátt sparkað aftur í gang umræðunni um stækkunarmál Evrópusambandsins. Eftir stóru stækkunina á fyrsta áratug þessarar aldar, þegar tólf ríki í austurhluta Evrópu komu inn í klúbbinn, var byrjað að tala um „stækkunarþreytu“ innan Evrópusambandsins; síðast fjölgaði í hópi aðildarríkja árið 2013, þegar Króatía bættist við, og síðan þá hefur auðvitað fækkað um eitt ríki, þegar Bretar gengu út í upphafi árs 2020, fjórum árum eftir Brexit atkvæðagreiðsluna.En síðan 2022 hefur kveðið við annan tón innan Evrópusambandsins. Nú er talað um nauðsyn þess að Evrópusambandið stækki og eflist í viðsjárverðum heimi þar sem stórar valdablokkir takast á.Níu ríki er núna með formlega stöðu umsóknarríkis - þar á meðal Úkraína og Moldóva, s