Kúrdi verður ráðgjafi forseta Sýrlands

Ahmed al-Sharaa, forseti Sýrlands, hefur skipað kúrdíska leiðtogann Mazloum Abdi í embætti forsetaráðgjafa.Abdi hefur farið fyrir Sýrlensku lýðræðishersveitunum (SDF), sem nutu stuðnings Bandaríkjamanna. SDF voru her kúrdíska sjálfsstjórnarsvæðisins í norður- og austurhluta Sýrlands. Abdi tilkynnti á þriðjudag að lýðræðissveitirnar yrðu leystar upp í samræmi við samkomulag um sameiningu milli Kúrda og Sýrlendinga. Sveitirnar sameinast sýrlenska hernum.Kúrdar eru með fjölmennustu þjóðum heims sem ekki eiga sér sjálfstætt ríki. Flestir eru í Tyrklandi, Írak, Sýrlandi og Íran.
Kúrdi verður ráðgjafi forseta Sýrlands

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd