Hrafnhildur Arnardóttir, þekkt sem listamaðurinn Shoplifter, segir að verk hennar Chromo Sapiens sé nú til sýningar í Höfuðstöðinni í hennar óþökk. Hún hafi ekki lengur aðgang að sýningarrýminu auk vinnustofu sinnar á svæðinu en búið sé að skipta um lása á byggingunni. Hrafnhildur segir málið hreinan listaverkastuld, enda sé hún réttmætur eigandi verksins.