Maðurinn sem lést í Stuðlagili

Karlmaðurinn sem lést í Stuðlagili á mánudag var 39 ára gamall Pólverji sem var hér á landi í ferðalagi. Hann heitir Piotr Sójka. Lögreglan á Austurlandi greinir frá þessu í tilkynningu. Þar segir að tildrög slyssins séu til rannsóknar og miði þeirri rannsókn vel. „Hugur okkar er hjá aðstandendum Piotr og er þeim vottuð samúð okkar,“ segir Kristmundur Stefán Einarsson, lögreglustjóri á Austurlandi, í yfirlýsingunni.
Maðurinn sem lést í Stuðlagili

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd