Efast um uppsagnir á sama tíma og styrkja á framlínuþjónustu

Það vekur alvarlegar spurningar að fjölmennum hópi starfsfólks sé sagt upp á sama tíma og borgaryfirvöld segjast ætla að styrkja framlínuþjónustu, tryggja samfellu og koma í veg fyrir þjónusturof. Þetta segja Félagsráðgjafafélag Íslands, Sálfræðingafélag Íslands og Viska stéttarfélag um uppsögn 86 starfsmanna hjá Reykjavíkurborg.Í sameiginlegri yfirlýsingu félaganna segir að á bak við hvert stöðugildi séu verkefni og fólk sem þurfi á þjónustu að halda. „Börn og fjölskyldur hætta ekki að þurfa stuðning þótt skipuriti sé breytt eða starfstöðvar færðar til. Þegar fagfólk hverfur úr starfi getur rof orðið á þjónustu og mikilvæg þekking á aðstæðum einstaklinga og fjölskyldna tapast.“Félögin segja að sýna verði fram á hvernig komið verði í veg fyrir aukinn málafjölda og vinnuálag á hvern starfsm
Efast um uppsagnir á sama tíma og styrkja á framlínuþjónustu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd