Þjóðin gengur að kjörborðinu á morgun og greiðir atkvæði um hvort aðildarviðræður við Evrópusambandið verði hafnar að nýju. Fréttastofa óskaði nýverið eftir spurningum frá almenningi um mögulegar aðildarviðræður og margir svöruðu kallinu.Spurningarnar voru fjölbreyttar og nokkrar þeirra sneru að því hvaða áhrif möguleg aðild Íslands að ESB hefði á fullveldi Íslands í ýmsum málaflokkum, til dæmis: „Hvaða áhrif hefði aðild ESB á dómsvald á Íslandi?“ DÓMSTÓLL EVRÓPUSAMBANDSINS Dómstóll Evrópusambandsins er æðsta dómsvald ESB. Dómstóllinn hefur aðsetur í Lúxemborg og er skipaður 27 dómurum, einum frá hverju aðildarríki. Í málunum sem koma til kasta dómstólsins dæma þrír, fimm eða 15 dómarar eftir eðli og umfangi máls. Einfaldur meirihluti ræður niðurstöðunni.Dómstóllinn túlkar Evrópurétt og