Hægur vindur og skýjað víðast hvar

Útlit er fyrir hægan vind í dag og á morgun. Skýjað verður um mestallt land og dálitlar skúrir á víð og dreif. Bjartara verður yfir suðvestanverðu landinu og þar verður þurrara. Ekki verður þó ýkja hlýtt, mest 13 til 14 stig á Suðurlandi.Veðurspáin er svohljóðandi:Hæg norðlæg eða breytileg átt. Bjart með köflum og þurrt að kalla um landið suðvestanvert, annars skýjað að mestu og dálitlar skúrir á víð og dreif. Hiti 6 til 13 stig yfir daginn, mildast á Suðurlandi. Svipað veður á morgun.
Hægur vindur og skýjað víðast hvar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd