Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði þrjá ökumenn á yfir 100 kílómetra hraða á kvöld- og næturvaktinni. Sá sem fór hraðast mældist á 148 kílómetra hraða í Mosfellsbæ þar sem er 70 kílómetra hámarkshraði. Tveir mældust á 122 kílómetra hraða í Garðabæ og Hafnarfirði þar sem hámarkshraðinn er 80.Allar stöðvar voru sendar að fjölbýlishúsi í Grafarvogi um klukkan tvö í nótt. Þar logaði eldur í útidyrahurð. Fyrsta stöð sem náði á staðinn sneri öðrum við og var fljót að slökkva eldinn. Einhverjar reykskemmdir urðu á gangi en íbúum varð ekki meint af.Lögreglubíll.RÚV / Sölvi Andrason