Það gæti orðið minni munur á milli Já og Nei þegar talið verður upp úr kjörkössunum á laugardaginn heldur en skoðanakannanir benda til núna, að mati stjórnmálafræðings. Skoðanakannanir benda til þess að úrslitin verði hnífjöfn, svo jöfn að örfá atkvæði gætu skilið að. Dæmi frá Bretlandi og Bandaríkjunum sýni að fylgi annarrar hliðar geti verið vanmetin.