Það þarf ekki alltaf að leita langt eftir fegurðinni. Stundum stendur hún úti í garði. Í njólanum sem enginn hugsar um sem blóm. Í rabarbarastöngli, hvönn eða rauðsmára. Í bóndarós sem hefur verið ræktuð af alúð eða fræhylki valmúans sem hefur þegar lokið sínu hefðbundna hlutverki og flestir hefðu ef til vill klippt af og hent.