Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur gefið út forsetatilskipun um að Ontario-vatn verði endurskírt og verði framvegis kallað Ameríkuvatn. Hann undirritaði forsetatilskipun sína um þetta í Hvíta húsinu í gærkvöld.Trump hefur fyrirskipað innanríkisráðuneytinu að uppfæra tilvísun í vatnið í opinberum gögnum innan 30 daga og tryggja að ríkisstjórnin kalli það Ameríkuvatn hér eftir. Hann réttlætir nafnbreytinguna með vísun í að dýpsti hluti vatnsins sé innan Bandaríkjanna og þar með geri Bandaríkin tilkall til meirihluta vatnsins.Þetta útspil Trumps kemur í kjölfar tollastríðs milli Bandaríkjanna og Kanada eftir að viðræður um tollasamkomulag fóru út um þúfur.Forsætisráðherra Kanada, Mike Carney, hefur hafnað þessari tillögu Bandaríkjaforseta og sagði að Ontario-vatn hefði aldrei heitið neitt a