Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur segir umræðuna um Evrópusambandið í grunninn snúast um mun stærri spurningu en evru, vexti eða einstök samningsatriði. Að hans mati sé þetta fyrst og fremst spurning um hvar Íslendingar telji landið eiga heima. „Þetta er tilvistarleg spurning. Hún snýst um það hvar menn telja Ísland eiga heima,“ sagði Eiríkur í Dagmálum Morgunblaðsins.