Eftir að Öxar við ána hafði hljómað yfir blaktandi fánum á Austurvelli steig Halldór Benjamín Þorbergsson á svið. Halldór var nýkominn af árshlutafundi fasteignafélagsins Heima hf, þar sem hann er forstjóri. Hann hafði klukkustund áður kynnt hluthöfum að hagnaður fyrri helming ársins hefði verið 4,6 milljarðar króna. Þeir náðu að hækka leigutekjurnar um rúmlega þrjú prósent umfram verðbólguna og hagnaðinn...