Verðbólga mældist 5,6% í ágúst og hefur ekki verið hærri í tvö ár. Forseti Alþýðusambands Íslands segir mögulegt að kjarasamningar haldi ef fyrirtækin lofi því að velta sínum kostnaði ekki yfir á launafólk.Verðbólgan er það mikil að hægt er að virkja forsenduákvæði um endurskoðun og uppsögn kjarasamninga sem gerðir voru 2024.Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, segir mælinguna vera vonbrigði en að hún komi ekki á óvart. Verkalýðshreyfingin hafi kallað eftir því að fyrirtæki, ríki og sveitarfélög myndu halda aftur af hækkunum svo hægt væri að ná niður verðbólgu.„Það hefur ekki gengið eftir. Og þar hefur ríki og sveitarfélög gengið fram fyrir skjöldu og verið hvað stórtækust í,“ segir Finnbjörn.Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra hafnar þessu.„Það hefur heilmikið verið rætt um það að h