„Ég ætla að útskýra fyrir ykkur hvers vegna við höfnuðum vondum samningi og hvað gerist næst,“ sagði Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, á laugardagsmorgun þegar hann greindi samlöndum sínum frá því að viðræður um tollasamkomulag við Bandaríkin hefðu farið út um þúfur.Alla jafna væri tollasamningur ekki tilefni til fréttamannafunda og beinna útsendinga á laugardagsmorgni, en þetta sýnir glögglega að miklu meira er undir en tollar. ROF Í SKIPAN HEIMSMÁLA Carney vakti mikla athygli þegar hann hélt ræðu á Davos-ráðstefnunni í janúar, þar sem hann talaði meðal annars um rof í skipan heimsmála og upphaf tímabils þar sem stórveldin teldu sig engum takmörkunum háð þegar kæmi að því að framfylgja vilja og hagsmunum.Hann talaði um að meðalstór ríki, middle powers, væru ekki valdalaus og þyrftu