Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, undirritaði í dag reglugerð um notkun síma og snjalltækja á skólatíma í grunnskóla og á frístundaheimilum. Markmið reglugerðarinnar er að skapa aukinn námsfrið, efla vellíðan og félagsleg tengsl barna og stuðla að jákvæðum skólabrag en samkvæmt reglugerðinni mega börn og unglingar ekki nota síma á skólatíma.