Eilítið fleiri ætla að segja nei en já í þjóðaratkvæðagreiðslunni um framhald viðræðna við ESB á laugardag samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup.Af þeim sem tóku afstöðu í könnuninni ætla 51,6% að greiða atkvæði á móti framhaldi aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Jákvæðir eru hins vegar 48,4%.Munur milli fylkinganna tveggja mælist ekki tölulega marktækur, líkt og í síðasta þjóðarpúlsi frá því um miðjan mánuðinn. Þá sögðust 51,5% ætla að segja já en 48,5% nei. VIÐSNÚNINGUR HJÁ UNGU FÓLKI Yngsti aldurshópurinn er áberandi líklegri en aðrir aldurshópar til að segja nei. Það er breyting frá því í síðustu mælingu. Nú segist 60% fólks á aldrinum 18–29 ára ætla að segja nei.Þetta er talsverð breyting frá því í júní þegar 63% í aldurshópnum ætluðu að segja já. Þá var mestur stuðningur við framhal