Katrín sagði að á sínum tíma hefði henni þótt það skylda sín að kanna möguleika ESB-aðildar fyrir þjóðina. Hún hefði síðar sannfærst um „mikilvægi þess að við hefðum fullt forræði á málum og gætum gripið til þeirra ráða sem hentuðu okkur án þess að þurfa að fara á hnjánum til Brussel til að biðja um leyfi til að bjarga okkur með eigin leiðum“.