Sjaldan hefur verið jafn mikil kjörsókn utankjörfundar og í þjóðaratkvæðagreiðslunni um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið. Tveir dagar eru fram að kjördegi en fjöldi landsmanna hefur þegar gert upp hug sinn og greitt atkvæði.Sigríður Kristinsdóttir, sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu, segir kjörsókn utan kjörfundar mun meiri en búist var við og enn séu tveir dagar til stefnu. Ljóst sé að áhugi landsmanna á málefninu sé mikill.Sjaldan hafi jafn margir greitt atkvæði utan kjörfundar og ljóst sé að þátttaka verði meiri en í utankjörfundaratkvæðagreiðslum í kosningum undanfarinna ára.Hátt í 49 þúsund hafi greitt atkvæði á landinu öllu, í sendiráðum og hjá ræðismönnum, þar af hátt í 33 þúsund á höfuðborgarsvæðinu.Til samanburðar hafi rúmlega 28 þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar á