Eyþór Rúnar Þórarinsson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Suðurnesja, segist ekki hafa vitað að til stæði að nota slökkviliðsfólk í auglýsingu Áfram Ísland. Vísir sagði fyrst frá.Eyþór segir reglulegt flæði af myndatökum inn á slökkvistöðina. „Við fengum ekki upplýsingar um hvað þetta væri nákvæmlega,“ segir Eyþór. Þær upplýsingar sem hann hafi fengið væru að sýna ætti mismunandi stéttir landsins.Hann hafi veitt heimild fyrir tökunum út frá þessum upplýsingum.Þeir slökkviliðsmenn sem tóku þátt í myndatökunni hafi þó vitað hvaða samtök væru mætt og hafi veitt persónulegt leyfi fyrir því að vera myndaðir.Aðspurður hvort hann hafi fengið upplýsingar um tökurnar eftir að þær fóru fram segir hann svo ekki vera. „Ekki fyrr en ég fæ símtal frá Vísi,“ segir Eyþór sem segist ekki hafa hringt eftir uppl