Fasteignafélagið Heimar hf. hagnaðist um 4,6 milljarða króna á fyrri helmingi ársins, sem er hækkun úr 1,1 milljarði króna á sama tímabili í fyrra. Stór hluti hagnaðarins er matsbreyting fjárfestingaeigna, sem nam 7,7 milljörðum króna. Alls voru rekstrartekjur Heima 8,7 milljarðar króna. Þær hækkuðu um 16% á milli ára. Leiðrétt fyrir verðbólgu og breytingar á eignasafni var raunvöxtur leigutekna 3,1%...