Farþegavél Icelandair varð að lenda í Boston

Farþegaflugvél Icelandair varð að lenda á Boston-flugvelli í dag af öryggisástæðum. Flugvélin var á leið frá Nashville í Bandaríkjunum til Íslands. Flestum farþegum hafa þegar verið fundnar nýjar flugferðir á komustað.Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, staðfestir þetta. Flugvélin er af gerðinni Boeing 737 Max.„Það kemur upp melding og samkvæmt verklagi var ákveðið af öryggisstæðum að lenda í Boston,“ segir Guðni. „Melding um tæknilegt atriði sem þarf að líta á.“Hann hefur ekki frekari upplýsingar um hvers kyns tæknilegt atriði um ræðir.„Þau voru nálægt Boston-flugvelli. Þetta var svona næsti flugvöllur til að lenda á þar sem við erum með starfsemi og þjónustu.“Farþegum sem voru á leið til Evrópu með millilendingu á Íslandi hafa verið fundnar nýjar flugferðir í dag, í flestum
Farþegavél Icelandair varð að lenda í Boston

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd