Málflutningur aðildarsinna í ESB ber með sér ákveðinn veikleika að mati stjórnmálafræðings. Einkennandi sé að þeir sem vilji aðildarviðræður leggi áherslu á að kosningin snúist „bara um viðræður“ en forðist að tala skýrt um sjálfa aðildina. „Það bara felst í því auðvitað viðurkenning á því að innganga í Evrópusambandið sé ekkert voðalega vinsæl á Íslandi.“