Tekið að grána í fjöllum við Akureyri

Á Akureyri hefur verið heldur kalt í dag og mikið hefur rignt. Aðeins kaldara er í fjöllunum sem umlykja bæinn og snjóað hefur bæði í Vaðlaheiði og Hlíðarfjalli. Vaðlaheiði er tæplega 600 metra hátt fjall austan Akureyrar en Hlíðarfjall er um 1100 metra hátt vestan við bæinn.Snjórinn er ekki nægilegur til þess að fara á skíði. Mörgum bæjarbúum finnst þetta heldur snemmt, enda hefur ágúst ekki runnið sitt skeið.Veðurhorfurnar á Akureyri næsta sólahringinn gera ráð fyrir rigningu eða súld. Veðrið á að skána um helgina þar sem gert er ráð fyrir björtu veðri.Veðurspá til 29.8.2026Norðlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s, og rigning eða súld til kvölds, en rofar síðan til. Skýjað með köflum á morgun og stöku skúrir. Hiti 4 til 8 stig.
Tekið að grána í fjöllum við Akureyri

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd