Eini sem hló á fyrsta uppistandinu var Steinn Ármann

Lestin á Rás 1 var tileinkuð Steini Ármanni Magnússyni og Radíusbræðrum í vikunni. Síðustu helgi bárust þær fréttir að leikarinn og grínistinn Steinn Ármann væri látinn. Kristján Guðjónsson fékk Jón Gnarr, þingmann og grínista, til að ræða um íslenskt grín og áhrif Steins Ármanns á senuna. VAR Í ALGJÖRUM SÉRFLOKKI Jón Gnarr segir það umbúðalaust að íslenska grínsenan hafi verið algjör eyðimörk áður en Radíusbræður komu á sjónarsviðið í byrjun tíunda áratugsins á síðustu öld. Jón flutti til Svíþjóðar á þessum tíma. Þar kynntist hann uppistandi sem hann hafði aldrei séð á Íslandi.„Svo flutti ég heim og uppgötva Radíusbræður og þar kvað við algjörlega nýjan tón. Það var kallað á þessum tíma súrrealískt grín, en grín er í eðli sínu súrrealískt,“ segir Jón Gnarr og útskýrir að það séu sketsa
Eini sem hló á fyrsta uppistandinu var Steinn Ármann

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd