Yfir 1.400 manns er saknað eftir flóð og aurskriður við landamæri Tíbet og Nepal. Í Nepal hafa 359 fundist látin en um 350 hefur verið bjargað í dag.Aðstandendur bíða milli vonar og ótta eftir fréttum af sínum nánustu. Af þeim nærri 1.400 sem er saknað báðum megin landamæranna eru hátt í 800 erlendir ferðamenn - margir pílagrímar eða fjallgöngufólk. Hluti þeirra er frá Evrópu og Bandaríkjunum.Aðstoð er farin að berast frá öðrum löndum en erfitt hefur reynst að koma henni á staðinn öðruvísi en úr lofti. Samkvæmt UNICEF þurfa að minnsta kosti 17.000 börn á mannúðaraðstoð að halda. JÖKULHLAUP TALIÐ ORSÖKIN Jarðfræðistofnun Bandaríkjanna segir að jökulhlaup, hrun úr jökli, hafi komið flóðinu af stað. Hún líkir þessu við sjávarflóðbylgju í miðju landi. Hætta getur verið á frekari flóðum þar