„Þarf að stilla betur saman strengi“

Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að það sé mikilvægt að stilla betur saman strengi í baráttunni við verðbólguna. Aðilar vinnumarkaðarins og stjórnvöld þurfi að taka af meiri alvöru utan um vandann.Verðbólgan mælist 5,6% og forsendur kjarasamninga frá 2024 því brostnar. Það eru, að mati SA, mikil vonbrigði að ekki hafi náðst betri árangur síðasta árið.„Við erum búin að tapa heilu ári í baráttunni við verðbólguna,“ segir Bjarni. Hann segir að síðastliðið ár hafi verðbólgan aukist vegna hækkana hjá hinu opinbera en þá hafi utanaðkomandi áhrif sem Íslendingar hafa ekki stjórn á einnig spilað inn í.„Við þurfum að taka það líka til okkar. Það þarf að gæta að því þegar gerðir eru kjarasamningar að menn ráðstafi ekki fyrir fram svo ríflega öllu svigrúmi að það me
„Þarf að stilla betur saman strengi“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd