Fyrstu kaupendum hefur ekki fækkað á húsnæðismarkaði að undanförnu, raunverð húsnæðis hefur farið lækkandi og mun það að öllum líkindum halda áfram. Þá eru ekki merki um „frost“ á markaðnum né um að staða ungs fólks á leið inn á markaðinn fari versnandi.