Olga Tokarczuk er handhafi Alþjóðlegra bókmenntaverðlauna Halldórs Laxness í ár. Verðlaunin verða afhent 10. september klukkan 17 í Norræna húsinu í Reykjavík.Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, afhendir Tokarczuk verðlaunin. Hún fær sérhannaða verðlaunapeninginn auk 15 þúsund evra, sem samsvarar rúmlega 2,1 milljón íslenskra króna.Að athöfninni lokinni tekur rithöfundurinn þátt í samtali við Höllu Oddnýju Magnúsdóttur og Halldór Guðmundsson. Samkoman er opin almenningi og aðgangur ókeypis. VERÐLAUNUÐ FYRIR ENDURNÝJUN FRÁSAGNARLISTAR Alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness eru veitt annað hvert ár rithöfundi sem nýtur alþjóðlegrar viðurkenningar og hefur stuðlað að þróun og endurnýjun frásagnarlistar. Þeim er einnig ætlað að vekja athygli á verkum Halldórs L