Ratko Mladic er látinn. Hann var einn af leiðtogum Bosníu-Serba í borgarastríðinu í Júgóslavíu 1992 til 1995. Mladic fékk viðurnefnið Bosníu-slátrarinn vegna framgöngu sinnar í stríðinu. Hann var dæmdur 2017 fyrir þjóðarmorð, stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyni vegna framgöngu sinnar í borgarastríðinu. Þar ber einna hæst fjöldamorðin í Srebrenica. Þar myrtu menn undir hans stjórn 8.000 Bosníu-múslíma, karlmenn og drengi. Það eru verstu óhæfuverk í Evrópu eftir lok seinni heimsstyrjaldar.Mladic stýrði einnig umsátri Serba um bosnísku höfuðborgina Sarajevo í þrjú ár. Leyniskyttur og stórskotalið drápu þúsundir, karla, konur og börn, á götum og heimilum borgarinnar.Serbneskir fjölmiðlar greindu frá andláti Mladic í dag. Hann var 83 eða 84 ára. Ekki var fyllilega víst hversu gamall hann var. Ml