Ákæruvaldið fer fram á að Andri Már Mortensen Birgisson og Ingunn Rut Sigurðardóttir fái átta til tíu ára fangelsisdóma í Reykholtsmálinu svokallaða. Þetta kom fram í málflutningi ákæruvaldsins fyrir Héraðsdómi Suðurlands í dag.Sex Íslendingar, fimm karlar og ein kona, eru ákærð fyrir að halda manni föngnum á heimili sínu í Reykholti í Bláskógabyggð og beita hann harkalegu ofbeldi í því skyni að hafa af honum fé í apríl 2024.Farið er fram á sex til átta ára fangelsisdóm yfir einum sakborningi í málinu, fjögurra til sex ára fangelsisdóm yfir tveimur sakborningum og þriggja til fjögurra ára dóms yfir einum.Þess er krafist að sakborningarnir greiði um 250 til 300 þúsund krónur í málskostnað.Skýrslutökum lauk í aðalmeðferð málsins í morgun þegar tveir maltneskir læknar og íslenskur sálfræðingu