Starfsmenn varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna sem hafa til skoðunar hvernig fækka megi bandarískum hermönnum í Evrópu ætla að leggja fram að minnsta kosti fjórar tillögur. Það verður gert fyrir 6. nóvember, fyrr en áður stóð til. Ráðamenn í Evrópu hafa áhyggjur af því að Bandaríkjamenn hafi í hyggju að refsa tilteknum ríkjum Evrópu.