Inga búin að undirrita reglugerð um símanotkun í grunnskólum

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, er búin að undirrita reglugerð um takmarkanir á notkun farsíma og snjalltækja í skólum. Hér eftir mega börn ekki hafa á sér farsíma eða snjalltæki á skólatíma. Í reglugerðinni er lagt bann við því að börn séu með farsíma og snjalltæki á skólatíma sem ekki eru í eigu skóla eða frístundaheimilis. Ef börn koma með eigin síma eða tæki í skólann verða þau að skilja þau eftir í þar til gerðri geymslu í skólanum eða á frístundaheimilinu. Tekið er fram í reglugerðinni að símabannið, eða símafrí eins og það er nefnt, eigi við á öllum skólatíma. Undir það falla auk kennslustunda frímínútur, matarhlé, vettvangsferðir og ferðir á vegum skólans. Bannið nær líka til frístundaheimila og tómstunda- og félagsstarfs sem er hluti af daglegu skólastarfi. Þó má nota s
Inga búin að undirrita reglugerð um símanotkun í grunnskólum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd