Þórdís Gerður Jónsdóttir sellóleikari semur öll lögin á nýrri plötu sinni fyrir utan eitt. Platan heitir Hljóð í ljóði og ber nafn með rentu þar sem lögin eru samin út frá gömlum og nýjum íslenskum ljóðum án þess þó að þau beri texta. Þórdís ræddi við Melkorku Ólafsdóttur í Víðsjá á Rás 1 þar sem hún sagði frá plötunni og hljóðfærinu. > Fyrst þegar ég var að byrja ætlaði ég að gera lög við ljóðin en svo vildi tónlistin fara sína eigin leið. Þá málaðist skýr mynd af stemningu ljóðsins og ég elti hana. Oft er brot úr textanum, eða einhverjar setningar sem mér þótti sérstaklega sterkar, sem urðu að laglínunni. Að þessu leyti hugsar Þórdís Gerður sellóið eins og rödd.„Sérstaklega í þessu laglínuhlutverki. Þetta er djassplata en sellóið er ekki heimavanasta hljóðfærið í djassi og ég var mjög