Koma Barcola opnar dyrnar fyrir Gakpo að fara

Bradley Barcola er á leið til Liverpool en sagt var frá því í morgun að Liverpool væri komið með samkomulag við PSG um kaup á franska kantmanninum. Koma Barcola opnar dyrnar fyrir Cody Gakpo að fara annað en hann hefur verið orðaður í burtu frá Liverpool í sumar. Slúðrað hefur verið um að Gakpo, sem er 27 ára, kosti 60-70 milljónir punda. Manchester City og Tottenham hafa verið orðuð við hollenska kantmanninn. Líkur eru á því að Liverpool vilji selja til að safna upp í hluta kaupverðsins á Barcola sem kostar 120 milljónir punda.
Koma Barcola opnar dyrnar fyrir Gakpo að fara

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd