Verðbólga hefur ekki verið meiri í tvö ár og mælist nú 5,6 prósent. Þar með eru forsendur til að segja upp kjarasamningum um næstu mánaðamót. Forsvarsmenn Starfsgreinasambandsins og Samtaka iðnaðarins segja stöðuna alvarlega og kalla eftir sameiginlegu átaki stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins til að ná tökum á verðbólgu og vöxtum