Tónlistar- og leikkonan Dolly Parton glímdi við krabbamein áður en hún lést. Hún var lögð inn á Vanderbilt-Ingram heilbrigðisstofnunina í heimabæ sínum, Nashville, á föstudag. Þar lést hún umkringd ástvinum sínum.Greint var frá andláti Parton í gær. Talsmaður hennar sagði síðar í yfirlýsingu til fjölmiðla að hún hefði verið greind með krabbamein fyrir nokkru og fengið meðferð við því. Ekki kom fram hversu langt er síðan hún fékk þá greiningu.Í umfjöllun The New York Times er greint frá því að hún hafi í fyrra frestað skemmtunum í Las Vegas vegna ótilgreindra heilsuvandamála og að hún hafi aflýst þeim skemmtunum fyrr á þessu ári af sömu sökum. Fyrir rúmri viku varð hún að sleppa því að mæta í skemmtigarðinn Dollywood eins og fyrirhugað hafði verið.