Doppudrottningin er látin

Ein þekktasta listakona Japans, framúrstefnulistakonan Yayoi Kusama, er látin 97 ára að aldri. Kusama var þekkt sem doppudrottningin en doppumynstur af ýmsum stærðum og gerðum voru einkennandi í listsköpun hennar. Með eldrauða hákollu og að sjálfsögðu ávallt klædd í doppótt föt, vakti hún athygli hvert sem hún kom.Hún fæddist árið 1929 inn í auðuga fjölskyldu og hóf listsköpun sína 10 ára gömul. Að loknu listnámi í Japan flutti hún til Bandaríkjanna seint á 6. áratugnum og varð þekkt fyrir skynörvandi litaval og speglainnsetningar sem virtust óendanlegar. Hún snéri til baka til Japan á 8. áratugnum og fór sjálfviljug á geðsjúkrahús, þar sem hún bjó og starfaði til dauðadags.Graskersskúlptúrar, rýmis- og innsetningarverk hennar vöktu mikla athygli og seldust fyrir milljónir dollara. Kusama
Doppudrottningin er látin

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd