Tveir dagar eru til stefnu þar til landsmenn ganga að kjörborðinu og taka afstöðu til þess hvort viðræður um aðild að Evrópusambandinu verði hafnar á ný.Viðmælendur fréttastofu á höfuðborgarsvæðinu og Selfossi segjast flestir búnir að ákveða hvað þeir ætla að kjósa í þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardaginn. Sumir telja aðildarviðræður mikilvægar fyrir framtíðina en öðrum finnst regluverk ESB yfirþyrmandi.